Smella á mynd til að stækka

Vorið og sumarið 2010 verður Hruni að störfum sem hér segir:
Hruni er nú kominn í girðingu að Kílhrauni, Skeiðum. Er heilbrigður og eldhress. Verður í Kílhrauni til 12. júní 2010. Fram til þess tíma er aðeins tekið við hryssum sem eru að ganga.
Ekkert girðingargjald og hryssueigandi annast sónarskoðun. Staðfestingargjald kr. 10.000.
Folatollur við þessar aðstæður er kr. 40.000.
 
Hruni verður í girðingu að Austvaðsholti í Landssveit frá og með 12. júní 2010. 

Seinna gangmál ákvarðast þannig að sónarskoðað verður úr girðingunni um miðjan júlí og bætt inn í hópinn fyrir þær hryssur sem „útskrifast”.
Verðskrá:
Folatollur kr. 50.000.  
Girðingagjald kr. 15.000.
Sónarskoðun kr. 2.500.

Staðfestingargjald kr. 10.000 greiðist við pöntun eða áður en hryssu er haldið. Folatollur reiknast þó aðeins ef fyl er staðfest með sónarskoðun. Sé hryssan tóm endurgreiðist staðfestingargjaldið. 
 
Samkvæmt lauslegri samantekt virðist Hruni hafa verið með rúmlega 90% fyljun að jafnaði. Svo er að sjá sem hryssur með venjulega frjósemi fyljist nánast í 100% tilvika.
 
Pantanir óskast sendar á hruni@hruni.is.
eða í síma: Ragnar Tómasson, síma 896 2222 eða Ragnar yngri í 662 2255.

Höfundarréttur © 2007 www.hruni.is - Allur réttur áskilinn- Hönnun og uppsetning - www.hestafrettir.is - www.aicon.is