|

|
|
|
 Smella á mynd til að stækka
|
|
 |
11.8.2009 15:11 Þriðja sumarið hans Hruna á suðurlandi.Árið í ár er þriðja tímabilið hans Hruna á suðurlandi. Fullskipað var í bæði gangmálin öll þessi ár. Þá var húsnotkun í vor meiri en áður. Það hefur verið með ráðum gert að stilla verði folatollanna í hóf og leggja þannig meiri áherslu á góða notkun hans.
Lesa meira... |
3.4.2008 19:02 Hruni á sýningum 2008Það hefur töluvert verið óskað eftir því að Hruni komi fram á sýningum á Stór-Reykjavíkursvæðinu á þessu ári. Hann kom fram á sýningu í Reiðhöllinni í Víðidal, hann var sýndur á Dymbilsvikusýningunni hjá Gusti og mun taka þátt í keppni stóðhesta á Ístöltinu í Laugardal. Ragnar Tómasson, yngri, hefur að mestu annast um þjálfun Hruna í vetur og vor. Lesa meira... |
23.7.2007 13:33 Annríki hjá Hruna. Þó verkefnin séu næg, þá er rólegt og friðsælt yfir stóðinu hjá Hruna í girðingunni að Efra-Seli hjá Stokkseyri. Hann heldur sér að beit á milli þess sem hann sinnir embættisstörfum. Lesa meira... |
27.5.2007 00:23 Magnús prófar Hruna Tamningamaðurinn og hrossabóndinn Magnús Bragi Magnússon frá Íbishóli heilsaði upp á Hruna um Hvítasunnuhelgina. Magnús er vanur góðum hrossum en eins og flestir vita þá var heimsmeistarinn í tölti, Fengur frá Íbishóli ræktaður og taminn af Magnúsi. Lesa meira... |
25.5.2007 21:10 Í dag lauk dómum á Hruna frá Breiðumörk 2.  Hæfileikaeinkunn hans var í samræmi við væntingar en fyrir hæfileika hlaut hann 8,41 í einkunn. Hruni var með fimm níur, þ.e.fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, vilja og geðslag og hægt tölt. Fyrir stökk fékk hann 9,5 og 8,5 fyrir hægt stökk. Þá var hann með 8 fyrir fet og 5 fyrir skeið. Lesa meira... |
25.4.2007 14:29 Hruni á FM 07 á Austurlandi Hruni frá Breiðumörk 2 mun gleðja augu áhorfenda á FM07 á Austurlandi í sumar ef að líkum lætur. Eins og kunnugt er skipti Hruni um eigendur í vetur og er hann nú í þjálfun hjá Þórði Þorgeirssyni. Hesturinn hefur vakið athygli fyrir fjaðurmagnaðan fótaburð og mikla útgeislun. Lesa meira... |
21.4.2007 09:09 Hruni verður í girðingu í Efra-Seli Nú liggur fyrir að Hruni verður í girðingu í Efra-Seli við Stokkseyri, frá og með 2. júlí 2007 og út september. Það er ekki annað að sjá en að hólfið sé hættulaust, og það eru t.d. engir skurðir í því. Hólfið verður áborið fyrir sumarið. Þá er góður aðgangur að vatni. Lesa meira... |
15.4.2007 01:23 Húsfylli fylgdist með flottum stóðhestum.
Mikið fjölmenni fylgdist með Hruna og fleiri góðum stóðhestum í Skautahöllinni í Laugardal, laugardagskvöldið 14. apríl 2007. Við eftirlátum áhorfendum að meta frammistöðu okkar fulltrúa (við sjálf erum þrælmontin!) en hér birtast nokkrar myndir af sýningunni. Við biðjum fólk að virða það til betri vegar en birtan í höllinni takmarkar mjög myndgæðin. Lesa meira... |
11.4.2007 22:11 Hruni mætir  Framkvæmdastjórn keppninnar "Þeir allra sterkustu" sem haldin verður í Skautahöllinni í Laugardal, laugardaginn 14. apríl 2007, hefur óskað eftir því að Hruni komi fram sem sérstakt sýningaratriði í keppninni. Yrði hann þá væntanlega sýndur ásamt Mola frá Skriðu, en sá er undan Glampa frá Vatnsleysu.
Lesa meira... |
11.4.2007 12:12 Páskavikan hjá Hruna. Hruni fór í sundþjálfun í páskavikunni. Í hestasundlaug Örnu og Helga Leifs í Víðidal þjálfaði hann sundtökin. Að því loknu fór hann undir hitalampa og heitan blástur. Loks var hann látinn feta á göngubretti. Eftir lengsta sundsprettinn, sem var ca. 280 metrar, fór púlsinn upp í 200 slög á mínútu. Innan mínútu var púlsinn kominn vel niður fyrir 100 slög. Fyrir átökin í lauginni var púlsinn rúm 40 slög, þ.e. "hvíldarpúlsinn". Lesa meira... |
10.4.2007 19:56 Hruni frá Breiðumörk 2 kominn suður. Stofnað hefur verið hlutafélag um kaup á stóðhestinum Hruna IS2001175151 frá Breiðumörk 2. Hruni hefur vakið mikla athygli fyrir glæsilega framgöngu, mikinn vilja, óvenjulega háan fótaburð og rými á tölti og brokki. Hruni þykir sérlega litfagur en hann er ljósmóskjóttur. Lesa meira... | Eldri fréttir |
|