Nú eru folöldin að líta dagsins ljós eitt af öðru. Það er stór viðburður þegar okkur fæðist folald.
Og ekki spillir að fá hryssu!
Við viljum gjarnan að folaldið sé með „skemmtilega" liti!
Að maður tali ekki um ef hún fjaðrar hástíg um hagann!
Myndin er tekin á fyrsta degi í lífi þessarar fallegu móskjóttu hryssu undan Hrefnu frá Barkastöðum og Hruna. Það eru Evelyn Gunnarsdóttir og Ófeigur Ólafsson (á myndinni) sem eiga þessar mæðgur.
Skemmtilegar myndir vel þegnar.