|

|
|
|
 Smella á mynd til að stækka
|
|
 |
13.5.2010 14:31
Hægt tölt er besta konfektið!
Fátt veitir meiri unað en taktfast og fjaðrandi hægt
tölt. Eins og er hefur eitt afkvæmi Hruna komið í kynbótadóm, Þoka frá
Breiðumörk.
Hún var sýnd 5 vetra sumarið 2009. Það vekur athygli að Þoka er með
einkunnina
9 fyrir hægt tölt eins og Hruni faðir hennar.
Hún var ekki með nægilegt vald á yfirferðinni til að fá hærra en 8 fyrir tölt. Hún var hinsvegar með 8,5 fyrir brokk, vilja og geðslag, stökk og fegurð í reið.
En hversu algeng er einkunnin 9 fyrir hægt tölt?
Við skoðuðum til gamans afkvæmi tveggja stóðhesta sem hafa verið töluvert í umræðunni.
Nánar tiltekið kynntum við okkur öll þau afkvæmi Arons frá Strandarhöfði og Þrists frá Feti sem höfðu náð fyrstu verðlaunum. Alls voru þetta 32 fyrstu verðlauna afkvæmi. En það var aðeins eitt þeirra sem náði 9 eða hærra fyrir hægt tölt. Það var Örn frá Efri-Gegnishólum (undan Aroni), mikill stólpagæðingur sem keppt hefur á Heimsmeistaramóti. Örn fékk 9,5 fyrir hægt tölt.
Til baka
|
|