Smella á mynd til að stækka


12.5.2010 18:02
Þoka frá Breiðumörk
Þoka frá Breiðumörk er fyrsta tryppið sem er fulltamið undan Hruna. Aðaleinkunn Þoku 5 vetra í kynbótadómi var 7,73

(Móðir Þoku er ódæmd og er með 84 stig í kynbótamati).

Í umsögn dómnefndar um Þoku segir:

Um töltið (8):
Há fótlyfta. Mjúkt. Ferðlítið.*)

Um brokkið (8,5):
Rúmt, taktgott, há fótlyfta.

Um stökk (8,5):
Hátt.

Um vilja og geðslag (8,5):
Þjálni, vakandi.

Og um fegurð í reið (8,5):
Mikill fótaburður.

Og fyrir hægt tölt fékk Þoka einkunnina 9.

*Þoku vantaði einfaldlega meiri þjálfun til að ráða betur við yfirferðina.

Það var Stefán Sveinsson á Útnyrðingsstöðum sem tamdi Þoku. Hann keppti á henni í “Töltmótaröð Freyfaxa” árið 2009 en það er þriggja móta töltkeppni. Stefán varð stigahæstur keppenda, eða “Stigameistari” á Þoku.  Ekki slæmt á fimm vetra tamningatryppi. 




Til baka

Höfundarréttur © 2007 www.hruni.is - Allur réttur áskilinn- Hönnun og uppsetning - www.hestafrettir.is - www.aicon.is